top of page
  • Writer's pictureSvarthamars

Hvolpar væntanlegir

Við eigum von á hvolpum núna í ágúst.


Móðir hvolpanna er úr okkar ræktun, ISJCH Svarthamars Edda. Faðirinn er toppeintak af hundi, innfluttur frá Hollandi, AD BH IPO1 KKL1 Ghazi von Nordsee Sturm.


Geðslag beggja foreldra er hundrað prósent og eru þeir frábærir sem fjölskylduhundar.

Alla daga eru báðir foreldrarnir venjulegir heimilishundar og búa á heimilum með mörgum börnum og öðrum hundum án nokkurra vandræða.


Foreldrarnir eru af topp ættum og heilbrigðir á sál og líkama. Ekkert mjaðma- og olnbogalos langt aftur í ættir. Nánast allir ættfeður og ættmæður hafa lokið vinnuprófum (IPO eða SCHH) sem sýnir fram á að hausinn sé í lagi.


Sköpulag þessara hunda er okkur að skapi. Frábær stærð á bæði rakka og tík. Sterk og góð beinabygging. Styrkar og óþvingaðar hreyfingar. Geggjaðir litir.

Báðum hundum hefur gengið mjög vel á sýningum.


Báðir foreldrar hafa sýnt fram á þeir hafi að bera þá vinnueiginleika sem krafist er af tegundinni. Edda hefur lokið Bronzprófi í hlýðni og er að æfa sporarakningu með góðum árangri. Ghazi hefur klárað BH skapgerðarmat og IPO1 vinnupróf sem er þríþætt: Hlýðnivinna, sporavinna og bitvinna.


Þess utan hefur Ghazi klárað þýskan ræktunardóm, Kkl1 og AD þolpróf.

Þessi fjögur próf eru tekin erlendis og er krafist af öllum ræktunarhundum í heimalandinu, Þýskalandi. Við það að hafa lokið þessum fjórum prófum fær hundurinn stimpilinn: MÆLT MEÐ TIL RÆKTUNAR.


Við erum sannfærð um að með þessari blöndu fáum við framúrskarandi geðslag og heilbrigði. Sem er nauðsynlegt fyrir krefjandi starf fjölskylduhunda.


Áhugasamir hafi samband á svarthamars@gmail.com eða á Facebook.


Ghazi
AD BH IPO1 KKL1 GHAZI VON NORDSEE STURM

ISJCH SVARTHAMARS EDDA

AD BH IPO1 KKL1 GHAZI VON NORDSEE STURM

ISJCH SVARTHAMARS EDDA

769 views0 comments

Recent Posts

See All
bottom of page